Samninganefnd FÍF. Ljósmynd: mbl.is/Eggert

Samninganefnd FÍF skrifaði rétt í þessu undir kjarasamning við SA f.h. Isavia ohf.  Stefnt er á að samningurinn verði kynntur í vikunni og verður það nánar auglýst síðar í dag.

Öllum verkfallsaðgerðum FÍF (yfirvinnubanni og þjálfunarbanni) hefur verið aflýst af þessum sökum.