Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um orlofshús FÍF í Munaðarnes og Húsafelli fyrir sumarið. Umsóknir skal senda í tölvupósti á sif.aradottir@isavia.is.

Umsóknarfrestur er til miðnættis sunnudaginn 22. apríl.

Sumartímabilið stendur frá föstudeginum 18. maí 2012 til föstudagsins 14. september 2012.

Í boði er vikuleiga/helgarleiga. Athugið að vikuleiga gengur ávallt fyrir við úthlutun, þar með talið fram yfir punktastöðu.  Því næst er farið eftir punktastöðu. Leyfilegt er að sækja um eitt tímabil sem aðal, og síðan allt að tvö til vara. Það er einnig leyfilegt að sækja um í öðrum bústaðnum með hinn til vara.

Allar upplýsingar um úthlutunarreglur, verð og punktastöðu má finna hér á vefsíðunni.

Frekari spurningum skal beint til orlofshúsanefndar.