Opnað hefur verið fyrir umsóknir á leigu á bústððum FÍF í Munaðarnesi og Húsafelli haustið 2012. Leigutímabilið er frá 14. september til og með 4. janúar 2013. Vikuleiga gengur fyrir helgarleigu og tekið er mið af punktastöðu og því næst starfsaldri. Umsóknir þurfa að berast fyrir miðnætti mánudagsins 10. september.

Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á úthlutunarreglum og koma þær inn á heimasíðuna á næstu dögum. Helsta breytingin er sú að ef félagsmaður leigir bústað eftir úthlutun missir hann ekki punkta fyrir leiguna. Einnig verður leiguverð tvískipt milli vetrar- og sumartímabils og ákveðið með tilliti til rekstrarkostnaðar.

Orlofshúsanefnd minnir á að í Munaðarnesi hefur afruglari verið settur upp þar sem félagsmenn geta leigt áskrift af stöðvum 365 gegn vægu gjaldi.

Umsóknir skulu berast með tölvupósti á sif.aradottir@isavia.is fyrir miðnætti 10. september.

Bestu kveðjur, Orlofshúsanefnd