kosningar1Frestur til að senda inn lagabreytingatillögur fyrir aðalfund FÍF 2013 rennur út þann 10. janúar. Skv. lögum félagsins þarf því að senda inn lagabreytingatillögur fyrir miðnætti að kvöldi 9. janúar.

Engar tillögur hafa borist enn og því ákvað stjórn að senda út þessa áminningu.

Tillögur skulu sendar skriflega til ritara (Jón Ingi Jónsson) á netfangið ritari@iceatca.com

Framboð til stjórnarsetu

Nú í ár verður kosið um tvö sæti í stjórn félagsins auk formannsstöðunnar. Einnig verður kosið um tvo varamenn.

Þeir sem hafa áhuga á að starfa fyrir félagið í einhverjum af ofangreindum stöðum setji sig í samband við Guðmund Karl, vefstjóra, og tilkynni framboð sitt skriflega á netfangið vefstjori@iceatca.com

Dagsetning aðalfundar verður auglýst síðar.