intranetStærsti hlutinn af vef FÍF, www.iceatca.com, er lokaður og einungis aðgengilegur félagsmönnum. Hingað til hefur innri vefurinn verið samkeyrður ytri vef félagsins og ákveðnir hlutar hans verið læstir. En nú hefur sú breyting verið gerð að innri vefurinn er aðskilinn frá þeim ytri. Til þess að opna innri vefinn þurfa notendur að fara á vefslóðina www.iceatca.com/handbok eða smella á Innri vefur á forsíðunni.