hjartad_i_vatnsmyri_smallUm þessar mundir stendur félagið Hjartað í Vatnsmýrinni fyrir undirskriftarlista þar sem lagt er gegn þeim áformum að flugvallarstarfsemi víki úr Vatnsmýrinni. Skorað er á Reykjavíkurborg og Alþingi að tryggja öllum landsmönnum óskerta flugstarfsemi í Vatnsmýri til framtíðar. Þegar þetta er ritað hafa tæplega 53.000 manns skrifað undir áskorunina.

Félag íslenska flugumferðarstjóra hvetur til að fólk kynni sér málið á vefsíðunni www.lending.is.